Einn þekktasti rithöfundur Frakka og reyndar alls heimsins um miðja 19. öld var Jules Verne, en ásamt með enska höfundinum H. G. Wells var hann upphafsmaður vísindaskáldsögunnar, eins og við þekkjum hana í dag. Á Hlusta getið þið nálgast nokkrar sögur eftir þennan snilling bæði á íslensku og ensku. Á íslensku eru það sögurnar Dularfulla eyjan, Sendiboði keisarans, Höfrungshlaup og Sæfarinn. Þá bjóðum við upp á söguna Around the World in Eighty Days á ensku. Já, það skemmir ekki skammdegið að hlusta sögur eftir Jules Verne.