Fara beint í efni

The Leavenworth Case

Anna Katharine Green

Kápa: The Leavenworth Case

The Leavenworth Case

Anna Katharine GreenSögur á ensku39 kaflar, 11 klst. 55 mín.Á ensku

Um bókina

Sakamálasagan The Leavenworth Case: A Lawyer's Story kom fyrst út árið 1878 og var fyrsta skáldsaga höfundar. Sagan varð strax metsölubók og hafði mikil áhrif á þróun sakamálasagna, enda kom hún út níu árum áður en fyrsta sagan um Sherlock Holmes leit dagsins ljós. Sjálf Agatha Christie nefndi The Leavenworth Case sem áhrifavald á sín eigin skrif.

Sögusviðið er New York-borg. Horatio Leavenworth, fyrrum kaupmaður, finnst myrtur á heimili sínu. Grunur fellur á ungar frænkur hans tvær, en önnur þeirra á að erfa öll hans auðæfi. Rannsóknarlögreglumaðurinn Ebenezer Gryce er kallaður til og kemst fljótt að því að ekki er allt sem sýnist í fyrstu.

Kevin Green les á ensku.

Kaflar

39 kaflar, samtals 11 klst. 55 mín.