Fara beint í efni

Hjálp

Hvernig getum við hjálpað?

Almennt um hlusta.is

Hlusta.is býður þér nú þegar upp á þúsundir upplestra af vönduðu og fjölbreyttu efni og stöðugt bætist nýtt efni við. Með því að gerast áskrifandi að Hlusta.is opnast þér heill heimur af fróðleik og afþreyingarefni sem hægt er að hlusta á í rólegheitum heima hjá sér eða hvar sem er. Já, nú geturðu hvílt þig á bókinni annað slagið og hlustað á sögur eða fróðleiksþætti, eins og þig hefur alltaf langað til.

Hvernig segi ég upp áskrift?

Hægt er að segja upp áskrift í síma 551 6430 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hlusta@hlusta.is og óska eftir uppsögn á áskrift.

Hvernig stjórna ég lestrinum?

Finndu bók á forsíðunni, í flokkunum eða með leitinni efst á síðunni og opnaðu hana. Ýttu á stóra hringlaga hnappinn til að byrja á fyrsta kafla, eða veldu kafla úr kaflalistanum fyrir neðan. Sagan heldur sjálfkrafa áfram í næsta kafla.

Spilarinn neðst á síðunni sýnir hvaða bók er í spilun. Þar geturðu gert hlé, hoppað 15 sekúndur til baka eða áfram, farið í fyrri eða næsta kafla og dregið stikuna til að fara á annan stað í kaflanum. Í símanum opnast spilarinn á öllum skjánum þegar þú ýtir á hann.

Í stóra spilaranum geturðu líka breytt lestrarhraðanum og stillt svefnstillingu sem gerir hlé eftir 15, 30 eða 60 mínútur eða í lok kaflans. Hlusta.is man hvar þú varst, svo þú getur haldið áfram síðar undir „Haltu áfram“ á forsíðunni, í tölvunni eða í appinu.

Áskrift fyrir einstaklinga og heimili

Það er ótrúlegt en satt að þið getið gerst áskrifendur að hlusta.is fyrir einungis 1.790- kr. á mánuði. Fyrir þessa upphæð hafa áskrifendur fullan aðgang að öllum hljóðskrám sem nú þegar eru á Hlusta.is og líka öllum nýjum upplestrum. Núna er sett inn nýtt efni vikulega og tilstendur að fjölga þeim dögum sem nýtt efni bætist við. Í hverri viku bætast t.d. við lestrar úr öllum framhaldssögunum sem eru í lestri fyrir utan margvíslegt annað efni svo sem ljóð, barnasögur og fróðleikur af ýmsum toga.

Áskrifendur fá líka reglulega sent í tölvupósti fréttabréf um það sem er döfinni hverju sinni auk þess sem þeir geta skráð sig á Facebook síðuna okkar og tekið þátt í umræðu um efnið.

Áskrift fyrir bókasöfn, stofnanir og vinnustaði

Hlusta.is býður bókasöfnum, skólum, leikskólum, dvalarheimilum, stofnunum og vinnustöðum þar sem margir eru samankomnir upp á sérstök áskriftarkjör. Vegna þess hve slíkir staðir eru ólíkir hvetjum við alla til að hafa samband við okkur og semja um sérkjör.

Efnið sjálft

Til þæginda fyrir áskrifendur skiptum við hljóðbókunum okkar niður í eftirfarandi flokka:

Íslenskar skáldsögur. Hér má finna fjölbreytt safn skáldsagna eftir íslenska höfunda, allt frá þeim fyrstu sem skrifuðu skáldsögur á íslensku til rithöfunda úr samtímanum.

Íslenskar smásögur. Hér bjóðum við upp á smásögur eftir íslenska höfunda, ýmist samtímahöfunda eða rithöfunda liðinna alda.

Þýddar skáldsögur. Hér ættu allir að geta fundið eitthvað áhugavert að hlusta á, hvort sem það eru spennusögur, ástarsögur, uppvaxtarsögur, ævintýrasögur eða heimsbókmenntir. Sem dæmi má nefna perlur eins og Góða dátann Svejk, sögur af spæjaranum Sherlock Holmes og ritröðina um síðasta móhíkanann.

Þýddar smásögur. Þessi flokkur hefur að geyma smásögur eftir fjölbreyttan hóp erlendra höfunda. Þar má til dæmis nefna Edgar Allan Poe, Kate Chopin, Saki, Willa Cather, O. Henry og Guy de Maupassant.

Ævisögur og frásagnir. Hér má finna ferðasögur ævintýraþyrstra ferðalanga, frásagnir af einstöku lífshlaupi og margt fleira.

Bækur á ensku. Margir hafa gaman af því að hlusta á sögur á ensku og hér má finna fjölbreytt safn hljóðbóka, allt frá reyfurum til heimsbókmennta. Þetta er líka tilvalin leið til að þjálfa sig í enskunni á skemmtilegan hátt.

Íslendingasögur og fleiri fornrit. Þessi flokkur hefur að geyma Íslendingasögur, Íslendingaþætti, Fornaldarsögur Norðurlanda, Heimskringlu, Snorra-Eddu og fleiri öndvegisrit bókmenntaarfsins okkar.

Barnasögur og ævintýri. Hér er að finna íslensk og þýdd ævintýri, þjóðsögur, dæmisögur og aðrar sögur sem ætlaðar eru fyrir börn.

Ljóð. Hér má finna stök ljóð jafnt sem heilar ljóðabækur eftir öndvegisskáld eins og Einar Benediktsson, Jóhann Jónsson, Stephan G. Stephansson og fleiri.

Þjóðsögur. Þessi flokkur hefur að geyma bæði stakar þjóðsögur og þjóðsagnasöfn. Má þar til dæmis nefna Búkollu, Bakkabræður og sögur af álfum úr safni Jóns Árnasonar.

Greinar. Hér má finna greinar um allt milli himins og jarðar - menn, málefni og atburði.

Safnrit. Þessum flokki tilheyra rit með efni af ólíku tagi.

Viðtöl. Hér má finna viðtöl og samtalsbækur.

Leikrit. Í þessum flokki eru fáein leikrit sem ýmist eru upplesin í heild af einum lesara eða leikin eins og útvarpsleikrit.

Jólasögur. Jólasögur úr ýmsum áttum prýða þennan flokk, bæði íslenskar og þýddar.

Almennur fróðleikur. Hér má finna margs konar efni fyrir fróðleiksfúsa hlustendur.

Þjóðlegur fróðleikur. Þessi flokkur er svipaður og sá næsti á undan, nema hvað hér er um að ræða efni sem tengist íslenskri sögu og menningu á einhvern hátt.

Saga. Þessi flokkur inniheldur ýmislegt efni af sagnfræðilegum toga.

Að lokum má nefna að sumar hljóðbækur tilheyra fleiri en einum flokki.

Bókmenntakynningar á hlusta.is

Á hlusta.is munum við bjóða reglulega upp á kynningar á bókmenntum og einstökum höfundum til að hjálpa áskrifendum okkar að setja sig inn í ákveðin tímabil í bókmenntasögunni og verk einstakra höfunda.