Fara beint í efni
Kápa: Kynslóð kalda stríðsins

Kynslóð kalda stríðsins

Jón ÓskarÆviminningar32 kaflar, 8 klst. 32 mín.

Um bókina

Kynslóð kalda stríðsins er fjórða minningabók Jóns Óskars af sex og tekur upp þráðinn þar sem bókinni Gangstéttir í rigningu sleppir. Undirtitill bókanna er: Líf skálda og listamanna í Reykjavík.

Í bókinni rekur höfundur hvað á daga hans dreif á þessum árum um leið og hann segir frá athyglisverðum persónum sem urðu á vegi hans. Þá fáum við góða innsýn inn í þær bókmenntalegu hræringar sem áttu sér stað. Atómskáldin svokölluðu leika stóra rullu og sú andstaða sem þeir urðu fyrir frá menningaroddvitum þjóðarinnar, varðhundum gamalla gilda og aðferða.

Eins og í fyrri bókunum er frásögnin hreinskilin og einföld. Höfundur lýsir umhverfinu á hlutlausan hátt útfrá sjálfum sér en þó í ljósi eigin skoðana á mönnum og málefnum.

Bókin kom út hjá bókaútgáfunni GuðjónÓ árið 1975.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

 

Kaflar

32 kaflar, samtals 8 klst. 32 mín.