Fara beint í efni
Kápa: Sagan af Wassell lækni

Sagan af Wassell lækni

James HiltonSkáldsögur11 kaflar, 5 klst. 1 mín.

Um bókina

Sagan af Wassell lækni er byggð á sönnum atburðum í síðari heimsstyrjöldinni þegar bandaríski læknirinn Corydon M. Wassell bjargaði særðum löndum sínum undan innrás Japana á það sem þá hétu Hollensku Austur-Indíur, nú Indónesía. Tókst honum með harðfylgi að flytja þá til Ástralíu. Sagan var gefin út árið 1944 og einnig sama ár sem vinsæl kvikmynd með Gary Cooper í aðalhlutverki.

Höfundurinn, James Hilton (1900-1954), gaf út fjölda bóka og skrifaði einnig kvikmyndahandrit. Meðal þekktustu bóka hans voru Lost Horizon (1933) og Goodbye, Mr. Chips (1934).

Kristján Róbert Kristjánsson les.

Kaflar

11 kaflar, samtals 5 klst. 1 mín.