Fara beint í efni
Kápa: Pabbi og mamma

Pabbi og mamma

Eyjólfur GuðmundssonÆviminningar24 kaflar, 10 klst. 32 mín.

Um bókina

Í endurminningabókinni Pabbi og mamma segir Eyjólfur frá lífshlaupi foreldra sinna sem lengst af bjuggu í Mýrdalnum. Sagt er frá búskaparháttum, sjósókn frá sandinum og mörgu skemmtilegu fólki og atvikum. Margt var oft um manninn á heimili þeirra hjóna, en þau bæði atkvæðamikil og úrræðagóð.

Eyjólfur Guðmundsson var Mýrdælingur og gjarnan kenndur við bæinn Hvol þar sem hann bjó. Hann var atkvæðamikill í sinni sveit, lengi hreppsstjóri og sýslunefndarmaður, en auk þess að sinna félags- og framfaramálum í heimabyggð stundaði hann búskap, sinnti kennslu um skeið og fékkst við ritstörf. Fyrsta bók Eyjólfs, Afi og amma, kom út 1941 og fáeinum árum síðar Pabbi og mamma, endurminningabækur sem nutu mikilla vinsælda.

Kristján Róbert Kristjánsson les.

Kaflar

24 kaflar, samtals 10 klst. 32 mín.