Fara beint í efni
Kápa: Pétur Most: 1. Pétur sjómaður

Pétur Most: 1. Pétur sjómaður

Walter ChristmasSkáldsögur16 kaflar, 5 klst. 57 mín.

Um bókina

Sögurnar um Pétur Most eftir danska rithöfundinn Walter Christmas (1861-1924) voru vinsælar unglingabækur sem komu út á árunum 1967-1973. Urðu þær 5 talsins. Fyrsta hét Pétur sjómaður, önnur Pétur stýrimaður, þriðja Pétur konungur, fjórða Háski á báðar hendur og sú síðasta Á Vígslóð.

Sögurnar segja frá fátækum dönskum dreng sem ungur missir föður sinn og verður að standa á eigin fótum. Er hann ærið uppátækjasamur og lendir í mörgum skemmtilegum ævintýrum. Sögurnar sverja sig í ætt við sögur höfunda á borð við Frederick Marryat og henta vel öllum aldurshópum.

Björn Friðrik Brynjólfsson les.

Kaflar

16 kaflar, samtals 5 klst. 57 mín.