
Bláskógar (3. bók)
Jón Magnússon
Kápa: Bláskógar (3. bók)Um bókina
Bláskógar III er þriðja bókin í ljóðasafni Jóns Magnússonar sem alls taldi fjórar bækur. Í því er að finna mörg góð ljóð eins og Vígvelli, Völu og Gömlu hjónin í kotinu. Jón orti oftast hefðbundið en þó bregður hann út af því á nokkrum stöðum hér. Styrkur hans fólst fyrst og fremst í sérstæðri sýn hans á tilveruna, þessari fölskvalausu einlægni og hjartahlýju sem skín alltaf í gegn. Þá bjó hann yfir miklu valdi á tungumálinu þannig að ljóð hans eru oftast áreynslulaus og lipur.
Ingólfur B. Kristjánsson les.
Kaflar
49 kaflar, samtals 2 klst. 16 mín.