Fara beint í efni
Kápa: Náttfari

Náttfari

Theódór FriðrikssonSkáldsögur16 kaflar, 4 klst. 45 mín.

Um bókina

Skáldsagan Náttfari var síðasta sagan sem Theódór skrifaði og kom hún út tólf árum eftir að hann lést. Sá vinur Theódórs, Arnór Sigurjónsson, um útgáfuna. Í Náttfara sækir Theódór sér efnivið í landnámsöldina og segir sögu þeirra þriggja er eftir urðu þegar Garðar Svavarsson hafði hér vetursetu. Ætlaði Theódór í fyrstu að kalla þá sögu Yrsu eftir ambáttinni sem varð eftir með Náttfara, en honum var ráðlagt frá því. Það er þó augljóst að ambáttin í sögunni á mesta samúð hans. Er sú saga öll trúverðug og áhugaverð, enda þekkti Theódór sögusviðið vel og hafði greinilega lagt djúpa hugsun í lífsbaráttu þessara fyrstu landnema Íslandssögunnar.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

Kaflar

16 kaflar, samtals 4 klst. 45 mín.