Fara beint í efni
Kápa: Daníra

Daníra

Um bókina

Daníra er rómantísk skáldsaga sem gerist á þeim tíma þegar Austurríkismenn réðu lögum og lofum í Dalmatíu sem nú er hluti Króatíu. Austurríska keisaradæmið réð þar ríkjum frá 1815 til 1918.

Herforinginn Gerald kemur þangað með flokki sínum til að berjast við heimamenn, en jafnframt til að hitta heitmey sína, Edith, dóttur yfirforingjans á svæðinu. Þá hittir hann Daníru og örlögin taka í taumana.

Elisabeth Bürstenbinder fæddist í Berlín árið 1838. Hún skrifaði fjölda skáldsagna undir karlmannsnafni, dulnefninu Ernst Werner. Sú fyrsta birtist á prenti 1873, en hin síðasta 1909. Elisabeth Bürstenbinder lést árið 1918.

Kristján Róbert Kristjánsson les.

Kaflar

14 kaflar, samtals 4 klst. 59 mín.