Fara beint í efni
Kápa: Þjóðmenningarsaga Norðurálfunnar

Þjóðmenningarsaga Norðurálfunnar

Ólafur ÓlafssonFróðleikur112 kaflar, 15 klst. 29 mín.

Um bókina

Hér er á ferðinni bók sem býr yfir miklum töfrum. Í henni finnum við sagnfræði eins og hún gerist best og skemmtilegust, auk þess sem höfundur leiðir menn í sannleika um alls kyns strauma og stefnur allt frá Grikklandi hinu forna fram að uppgangi jafnaðarsinna á 19. öld, en segja má að bókin reki sögu heimsins fram að lokum þeirrar aldar. Er sagan sögð í 111 köflum.

Eins og segir í formála bókarinnar er hún byggð á skrifum danska sagnfræðingsins Gustav Bang sem á sínum tíma þótti með þeim fremstu í sinni röð. Það er Ólafur Ólafsson prestur að Arnarbæli sem endursegir hana á íslensku. Bókin var gefin út af Hinu íslenska þjóvinafélagi árið 1900 og þótti þá mikill fengur að henni.

Jón B. Guðlaugsson les.

Kaflar

112 kaflar, samtals 15 klst. 29 mín.