Fara beint í efni
Kápa: Molbúasögur

Molbúasögur

ókunnur höfundurStyttri sögur60 kaflar, 1 klst. 56 mín.

Um bókina

Hver þekkir ekki sög­urnar af Bakka­bræðrum? Margar sögur af þeim og þeirra uppátækjum hafa skemmt Íslendingum lengi. Bakka­bræður finnast einnig erlendis og má þar nefna Mol­bú­ana í Dan­mörku, enda hafa þær sögur átt auð­velt með að rata til Íslands, þar sem tengsl Íslands og Dan­merk­ur hafa jafnan verið sterk. Mol­búar munu einnig hafa skemmt fólki í Nor­egi, enda heyrði Nor­egur undir Dan­mörku þegar Mol­búa­sög­urnar urðu til með útgáfu bók­ar­innar Ber­etn­ing om de vidtbeki­endte Mol­boers vise Giern­inger og tapre Bedrifter árið 1771, en þar mátti finna 13 Mol­búa­sög­ur, hverja annarri kostu­legri. Í þessari bók, Molbúasögur, í þýðingu Bjarna Jónssonar, má finna 60 stuttar frásagnir af hrakförum og vitleysisgangi þeirra Molbúa. Mörgum sögunum svipar til frásagna af Bakkabræðrum okkar Íslendinga.

Þóra Hjartardóttir les.

Kaflar

60 kaflar, samtals 1 klst. 56 mín.