Fara beint í efni

Samið við Satan

Sigmund Freud

Kápa: Samið við Satan

Samið við Satan

Sigmund FreudFróðleikur6 kaflar, 1 klst. 18 mín.

Um bókina

Samið við Satan er eina sjálfstæða ritgerðin þar sem Freud tekur til umfjöllunar djöflatrú og samninga við þann Vonda. Engu að síður mun hann hafa haft talsverðan áhuga á því efni allt frá fyrstu starfsárum sínum. Má líklega rekja þann áhuga til námsvistar hans hjá J. M. Charcot, prófessors og yfirlæknis á Salpêtrière-geðsjúkrahúsinu í París 1885-1886.

Ritgerðin byggir á sögu málarans Cristoph Haitzmann frá Bæjaralandi sem uppi var á 17. öld. Hélt Haitzmann því fram að djöfullinn hefði haft samband við sig og reynt að freista sín. Hann hafi svo á endanum látið undan honum og gert við hann skriflegan samning. Greining Freuds á þessu óvenjulega máli er mjög áhugaverð og stórskemmtileg lesning.

Sigurjón Björnsson þýddi ritgerðina og skrifaði inngang.

Sigurður Arent Jónsson les.

Kaflar

6 kaflar, samtals 1 klst. 18 mín.