Fara beint í efni
Kápa: The Rainbow

The Rainbow

D. H. LawrenceSögur á ensku16 kaflar, 19 klst. 16 mín.Á ensku

Um bókina

Skáldsagan The Rainbow eftir D. H. Lawrence kom fyrst út árið 1915. Hér segir frá lífi og ástum þriggja kynslóða hinnar ensku Brangwen-fjölskyldu, frá miðri nítjándu öld og fram á þá tuttugustu, og leit þeirra að lífsfyllingu innan takmarka samfélags þess tíma. Sagan var bönnuð í Bretlandi um tíma sökum frjálslegrar umfjöllunar um kynferðismál.

Sjónvarpsmynd var gerð eftir sögunni á vegum BBC árið 1988, og árið eftir kom út kvikmynd byggð á sögunni í leikstjórn Ken Russell. The Rainbow hefur af ýmsum verið talin ofarlega á lista bestu og áhrifamestu skáldverka enskra og vestrænna bókmennta. Framhald sögunnar, skáldsagan Women in Love, kom út árið 1920.

Tony Foster les á ensku.

 

Kaflar

16 kaflar, samtals 19 klst. 16 mín.