Fara beint í efni
Kápa: Á flögri með Ólöfu Rún: 3. Guðrún Bjarnadóttir

Á flögri með Ólöfu Rún: 3. Guðrún Bjarnadóttir

Ólöf Rún SkúladóttirViðtöl1 kafli, 29 mín.

Um bókina

Þátturinn Á flögri með Ólöfu Rún er samvera með Íslendingum í leik og starfi. Allir eiga sögu. Eins og fugl á flögri setjumst við niður og heyrum sögubrot í notalegu spjalli. Hvers vegna lá lífsleiðin í þessa átt en ekki hina og stundum leynast spurningar um allt annað en aðalstarfið með. Notalegt spjall og samvera er hugmyndin að baki þáttunum.

Umsjón: Ólöf Rún Skúladóttir.

Guðrún Bjarnadóttir er litrík, fjölhæf og litaglöð kona. Hún hefur unnið við sjónvarp, við Háskólann á Hvanneyri við kennslu, við sæðingar og við jurtalitun og er þá ekki allt upp talið. Allmörg próf á hún í farteskinu, meðal annars í dýrahjúkrun. Áhugamálið tók yfir og varð að vinnu og nú rekur hún Hespuhúsið á Selfossi. Guðrún er gestur okkar í hlaðvarpsþættinum Á flögri.

Kaflar

1 kafli, samtals 29 mín.