Fara beint í efni

Sálin vaknar

Einar Hjörleifsson Kvaran

Kápa: Sálin vaknar

Sálin vaknar

Einar Hjörleifsson KvaranSkáldsögur19 kaflar, 6 klst. 12 mín.

Um bókina

Skáldsagan Sálin vaknar, frá árinu 1916, er samtímaskáldsaga og gerist í Reykjavík. Í sögunni segir frá ritstjóranum Eggerti Sölvasyni og hvernig hann nýtir sér óhugnanlegt morðmál sér til framdráttar, en snýr svo við blaðinu þegar hann verður fyrir dulrænni reynslu. Sagan ku vera byggð á sönnu morðmáli sem átti sér stað í Reykjavík árið 1913.

Sálin vaknar markaði ákveðin tímamót á rithöfundarferli Einars þar sem raunsæið víkur fyrir nýrri trú á lífið með hliðsjón af öðrum veruleika, annarri tilveru, ekki síst þeirri sem er handan hefðbundinna skilningarvita. Hefur verið sagt um söguna að hún sé fyrst norrænna skáldrita sem reist er á skoðun spíritista.

Sigurður Arent Jónsson les.

Kaflar

19 kaflar, samtals 6 klst. 12 mín.