Fara beint í efni

The Hound of the Baskervilles

Arthur Conan Doyle

Kápa: The Hound of the Baskervilles

The Hound of the Baskervilles

Arthur Conan DoyleSögur á ensku15 kaflar, 6 klst. 6 mín.Á ensku

Um bókina

The Hound of the Baskervilles var þriðja skáldsagan sem Arthur Conan Doyle skrifaði um þá félaga Sherlock Holmes og Watson lækni. Hún kom fyrst út sem framhaldssaga í tímaritinu The Strand á árunum 1901-1902. Doyle sem hafði þá ekki skrifað neitt um Holmes í átta ár og látið hann deyja í í bókinni The Final Problem hóf að skrifa söguna þegar hann kom heim til Englands eftir að hafa starfað sem læknir í sjálfboðavinnu í Suður-Afríku á tímum Búastríðsins. Lætur hann söguna gerast fyrir dauða Holmes, en hann átti síðar eftir að vekja Holmes til lífsins og skýra dauða hans í The Final Problem með því að Holmes hafi þar sviðsett eigin dauða. 

Sagan byggir á gamalli þjóðtrú um djöfulóðan hund og ríkan óðalsbónda sem álög hvíldu á. Er hún gríðarlega spennandi og myrkari en fyrri sögur Doyles um Holmes. Sérfræðingar í Holmes sögum telja söguna þá bestu í flokknum um Holmes. Í könnum sem BBC gerði árið 2003 var hún valin í 128. sæti yfir þær bækur sem mest eru lesnar og elskaðar af enskum lesendum.

David Clarke les á ensku.

Kaflar

15 kaflar, samtals 6 klst. 6 mín.