Fara beint í efni
Kápa: Þú ert hold af mínu holdi

Þú ert hold af mínu holdi

Kristofer JansonSkáldsögur10 kaflar, 2 klst. 14 mín.

Um bókina

Skáldsagan Þú ert hold af mínu holdi eftir Kristofer Janson segir frá tveimur bræðrum og stóru ástinni í lífi þeirra. Þetta er í raun harmsaga, fallega sögð og með mikilli samkennd með sögupersónum. Sagan kom fyrst út í íslenskri þýðingu árið 1898.

Kristofer Janson var norskt skáld, fæddur árið 1841 í Bergen í Noregi. Hann var afkastamikill rithöfundur og spanna verk hans yfir 50 bókmenntaverk og yfir 100 greinar.

Þóra Hjartardóttir les.

Kaflar

10 kaflar, samtals 2 klst. 14 mín.