Fara beint í efni
Kápa: Perlumærin (2. hluti)

Perlumærin (2. hluti)

H. Rider HaggardSkáldsögur12 kaflar, 7 klst. 25 mín.

Um bókina

Perlumærin er skáldsaga eftir enska rithöfundinn H. Rider Haggard (1856-1925). Undirtitill íslenskrar þýðingar frá 1934 er Söguleg skáldsaga frá eyðileggingu Jerúsalemsborgar. Seinni hlutinn gerist að mestu í Rómaborg og er Mirjam hluti af herfangi rómverska keisarans Títusar eftir sigurförina til Landsins helga. Skal hún seld hæstbjóðanda á uppboði. Khaleb og Markús leggja allt kapp á að ná henni til sín, en við bætist bróðir keisarans, Dómitíanus.

Jón Leví þýddi söguna sem gefin var út árið 1934 undir merkjum Vikuritsins - Reykjavík og prentsmiðju Jóns Helgasonar.

Kristján Róbert Kristjánsson les.

Kaflar

12 kaflar, samtals 7 klst. 25 mín.