
Vitrun Karls ellefta
Prosper Merimée
Kápa: Vitrun Karls elleftaUm bókina
Vitrun Karls ellefta er stutt dulræn saga eftir franska rithöfundinn Prosper Merimée sem var einn fremsti rithöfundur Frakka á nítjándu öld. Hann skrifaði í anda rómantíkur og var einn af fyrstu höfundunum sem tileinkuðu sér nóvellu-formið (sem er stutt skáldsaga eða löng smásaga). Hann er kunnastur fyrir söguna Carmen sem var fyrirmyndin að samnefndri óperu Bizets. Þá lærði hann rússnesku og var ötull þýðandi rússneskra skáldrisa yfir á frönsku.
Ingólfur B. Kristjánsson les.
Kaflar
1 kafli, samtals 21 mín.