Fara beint í efni
Kápa: Þú hlustar Vör

Þú hlustar Vör

Hulda (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind)Ljóð12 kaflar, 2 klst. 5 mín.

Um bókina

Ljóðaflokkurinn „Þú hlustar Vör“ eftir Huldu samanstendur af 9 ljóðabálkum, ásamt inngangs- og lokaljóði. Ljóðabálkarnir eru mislangir en eiga allir það sameiginlegt að hefjast á inngangsljóði.

Ljóð Huldu eru afar grípandi, dreymandi og heillandi og koma tilfinningar hennar sterkt fram. Hún sækir innblástur í sína eigin reynslu, sínar eigin tilfinningar, minningar, drauma og vonir. Ljóðin spanna allt frá ákalli til norrænu gyðjunnar Varar, til móðursorgar og ást móður til barna sinna.

Hafdís E. Jónsdóttir les.

Kaflar

12 kaflar, samtals 2 klst. 5 mín.