Fara beint í efni
Kápa: Morgunn lífsins

Morgunn lífsins

Kristmann GuðmundssonSkáldsögur46 kaflar, 9 klst. 44 mín.

Um bókina

Nafn Kristmanns Guðmundssonar (1901-1983) var ,,á hvers manns vörum'' í Noregi í kringum 1930 þar sem fyrstu skáldsögur hans birtust. Þær voru þýddar á yfir þrjátíu tungumál á 4. áratug síðustu aldar og víða gefnar út aftur og aftur. En á Íslandi mætti höfundurinn snemma miklum andbyr.

Nú gefst nýrri kynslóð tækifæri til að lesa eitt af bestu verkum Kristmanns Guðmundssonar, Morgun lífsins, sem á sér stað við hafnlausa strönd í sunnlensku samfélagi á seinni hluta 19. aldar. Á yfirborði virðist mannlífið kyrrstætt og staðnað en undiraldan er ógnvænleg.

Frásagnargleði og innsæi Kristmanns í mannlegan vanmátt og breyskleika hrífur lesandann með sér inn í straum örlaga og ásta - en hatrið, ,,hin þyngsta byrði lífsins'', bíður álengdar glottandi.

Guðmundur Ingi Kristjánsson les.

Kaflar

46 kaflar, samtals 9 klst. 44 mín.