Fara beint í efni

Valshreiðrið

Einar Benediktsson

Kápa: Valshreiðrið

Valshreiðrið

Einar BenediktssonStyttri sögur2 kaflar, 33 mín.

Um bókina

Eins og með mörg kunn skáld úr fortíðinni, hafa verk Einars Benediktssonar einhvern veginn dottið á milli kynslóða og fæstir þekkja nokkuð til verka hans. Þó hefur nafn hans ítrekað borið á góma, en öll umfjöllun tengd manninum hefur einkum snúist um manninn sjálfan og líf hans. Þetta dálæti okkar Íslendinga á persónunum á bak við skáldverkin, má þó ekki skyggja á sjálfan skáldskapinn. Það er fyrst og fremst hann sem gaf þessum gömlu meisturum það líf og gerði þau okkur hjartfólgna.

Sagan Valshreiðrið er jafnframt kunnasta saga hans. Í formála sínum að sögum Einars (útg. 1980) segir Kristján Karlsson um söguna: „Valshreiðrið er á hinn bóginn svo vel skrifuð, að merking hennar liggur í sjálfum stílnum; hún er meðal allra bestu smásagna tungunnar.“ Já, ummælin gerast vart betri.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

Kaflar

2 kaflar, samtals 33 mín.