Fara beint í efni
Kápa: Hrakningar og heiðavegir (1. bindi)

Hrakningar og heiðavegir (1. bindi)

Pálmi Hannesson og Jón EyþórssonFróðleikur27 kaflar, 9 klst. 50 mín.

Um bókina

Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson draga hér saman einstakar sögulegar heimildir um landsvæði sem nær yfir stærstan hluta Íslands, en er þó flestum landsmönnum enn ókunnugur. Hálendi Íslands var í senn mikilvæg samgönguleið allt frá landnámsöld þegar ferðir voru farnar milli landshluta í erindagjörðum bænda, höfðingja og biskupa.

Í þessu fyrsta bindi hins mikla bókaflokks Hrakningar og Heiðavegir fær lesandi - eða öllu heldur hlustandi - þessa margrómaða verks innsýn í hættur og slys, svo sem sviplegan dauðdaga Reynistaðarbræðra á Kili, sem og hlutverk hálendisleiða í vísitasíum og yfirreið biskupa á öldum áður. Frásagnir bókarinnar eru byggðar á upprunalegum heimildum og frásögnum einstaklinga sem höfðu persónulega reynslu af eða innsýn í hálendi Íslands. Sögur af svaðilförum, afrekum og þreki gagnvart óblíðum náttúruöflum eru aðeins brot af efni þessa fyrsta bindis. Efni bókarinnar opnar nýja sýn á samband þjóðarinnar við hálendi Íslands og dregur upp ljóslifandi mynd af baráttu ferðalanga um eyðislóðir.

Svavar Jónatansson les.

Kaflar

27 kaflar, samtals 9 klst. 50 mín.